Haustsesshin Zen á Íslandi – Nátthaga er stund þar sem við hættum að hlaupa á eftir iðkuninni og leyfum henni að mæta okkur. Ekki til að bæta okkur, laga eitthvað eða ná einhverju fram, heldur til að setjast einfaldlega niður og vera með því sem er. Í sesshin snúum við okkur að einföldum ramma: setu, göngu, máltíðum og athöfnum — aftur og aftur — þar til ekkert er eftir nema augnablikið sjálft.
Vikulangt Sesshin frá 19. – 25. október
Það gleður okkur að segja frá því að í ár verður haldið vikulangt haustsesshin. Það fer fram að Eirð við Gíslholtsvatn, frá mánudeginum 19. október til og með sunnudeginum 25. október 2026.
Tokudo vígsla 24. október
Á laugardeginum fer jafnframt fram fyrsta Tokudo prestsvígsla Ástvaldar Zenki, og munu fjórir iðkendur taka við prestsvígslu þann dag: Alfred Chozetsu, Guðmundur Steinn Shoto, Jóna Ingibjörg Shiko og Örn Issan.
Nyoze og Kashin Kwong
Þar að auki er það mikill heiður að Nyoze Kwong-osho, ábóti Sonoma Mountain Zen Center – Genjo-ji, verði með okkur á sesshin ásamt eiginkonu sinni Kashin Kwong.

Nyoze Kwong-osho er ábóti Sonoma Mountain Zen Center, þar sem hann hefur leitt iðkun og starf frá árinu 2023. Hann hefur yfir þrjátíu ára reynslu af hugleiðslu og zen-iðkun. Á Sesshin mun hann miðla af reynslu sinni af zen-iðkun og hvernig iðkunin getur birst í daglegu lífi.
Kashin Kwong hefur lagt stund á fræði og framkvæmd japanskrar teathafnar í Omotesenke-hefðinni frá árinu 2006 og er eldri nemandi Eko Mouri-sensei, en Omotesenke er sú te-hefð sem nálægust er Soto Zen. Á sesshin mun hún leiða te-kynningu þar sem hún miðlar hinni kyrrlátu iðkun wabi-cha, með áherslu á samveru, formfegurð og athygli í hverju augnabliki.
„Allt fæðist með því að fylgja vindinum;
allt deyr með því að fylgja vindinum.
Þegar þú veist hvaðan vindurinn kemur,
er ekkert líf og enginn dauði.“
— Zen Master Man Gong
Skráning á haustsesshin
Þetta sesshin er lengra en við eigum að venjast og um margt sérstakt. Um leið og við vonumst til að iðkendur taki virkan þátt er sætaframboð takmarkað. Við hvetjum þig því til að skrá þig sem fyrst.
Í þetta sinn biðjum við um staðfestingargjald við skráningu, en gjaldkeri mun senda kröfu í bankann fyrir staðfestingargjaldinu, 35.000 kr. (helmingi af þátttökugjaldinu). Krafa fyrir eftirstöðvunum verður svo send þegar nær dregur.
Hér er hnappur yfir á skráningarformið:
Með þakklæti í hjarta hlökkum við til að sitja, ganga og iðka með þér í haust. 🙏
Færðu inn athugasemd