Næsta laugardag, 10. október, mun Zen á Íslandi – Nátthagi halda leshring að Kletthálsi 1, 2. hæð. Thomas Taizan ætlar að lesa fyrir okkur valinn texta — kærkomið tækifæri til að staldra við, hlusta saman og ræða iðkunina í rólegheitum.
„Zazen er einföld og einlæg iðkun. Þegar þið veitið litla huganum athygli þá vex hann og vex og vex. Þegar þið veitið Stóra Huganum athygli þá ræktið þið Stóran Hug. Stóri Hugur er uppspretta okkar svo hann býr yfir andanum til að veita ykkur innblásturinn sem þið þurfið. Stóri Hugur er það eina sem þið getið treyst.“
— Ekkert upphaf, enginn endir. Jakusho Kwong-roshi

Við byrjum dagskrá laugardagsins með zazen, eða sitjandi hugleiðslu, kl. 08:00, en leshringurinn er svo frá kl. 10:15–11:15. Allir eru velkomnir og við vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Djúpt gassho.
Færðu inn athugasemd