Hoitsu Suzuki-roshi kjörinn varaábóti Eiheiji

By

Það er mikið gleðiefni að segja frá því að Hoitsu Suzuki-roshi hefur verið kjörinn varaábóti (jap. Fuku-Kanshu) við Eiheiji, eitt af tveimur höfuðklaustrum Soto Zen-skólans í Japan, og það klaustur sem stofnað var af Eihei Dogen Zenji árið 1244. Eiheiji, ásamt Sojiji, hefur um aldir verið hjarta Soto Zen og gegnir lykilhlutverki í varðveislu og miðlun Darma. Þessi skipun er því meðal mikilvægustu trúnaðar- og leiðtogastarfa innan Soto Zen-hefðarinnar.

Hoitsu Suzuki-roshi er sonur Shunryu Suzuki-roshi, hins virta Zen-meistara sem flutti árið 1959 frá Japan til San Francisco og átti síðar eftir að hafa djúpstæð áhrif á útbreiðslu Zen á Vesturlöndum. Kenningar hans lifa meðal annars áfram í bókinni Zen Mind, Beginner’s Mind, sem hefur verið fyrstu kynni ótal iðkenda af Zen. Sem Darma-erfingi föður síns tók Hoitsu-roshi síðar við sem ábóti Rinso-in í Japan. Hann hefur einnig um langt árabil starfað við Eiheiji, meðal annars við kennslu og leiðsögn iðkenda, auk þess að gegna fjölmörgum ábyrgðarstöðum innan Soto Zen-skólans.

Fyrir okkur hefur þessi frétt sérstaka merkingu. Jakusho Kwong-roshi, sem færði Soto Zen-hefðina til Íslands og hefur verið kennari okkar síðastliðna áratugi, er Darma-erfingi Shunryu Suzuki-roshi, föður Hoitsu-roshi. Með þeim hætti er Hoitsu-roshi hluti af þeirri sömu Darma-ættarlínu sem við höfum hlotið að ganga inn í og erum kölluð til að varðveita.

Við í Zen á Íslandi – Nátthaga sendum Hoitsu Suzuki-roshi innilegar hamingjuóskir vegna þessa mikilvæga áfanga. Megi hann njóta styrks og visku í þessu nýja hlutverki og megi Darma halda áfram að blómstra til heilla öllum verum.

Níu beygjur.

Fyrir hönd Zen á Íslandi – Nátthaga

Athugasemdir

Færðu inn athugasemd

NÝJUSTU FRÉTTIR

Fleiri fréttir [ -> ]