Roshi

JAKUSHO KWONG

JAKUSHO KWONG-roshi (1935-) er kennari Zen á Íslandi-Nátthaga. Hann byrjaði að iðka zen undir handleiðslu Shunryu Suzuki-roshi árið 1960. Gerðist zen munkur 10 árum síðar og stofnaði Sonoma Mountain Zen Center í Kaliforníu árið 1973. Kom fyrst til Íslands árið 1987 og hefur komið árlega til landsins til að leiðbeina félögum Zen á Íslandi. Árið 2003 kom út fyrsta bók Kwong roshi “No beginning, No end” sem og hljóðbókin “Breath Sweeps Mind”

“Þegar sólin kemur upp og skín á þig er skugginn fyrir aftan þig stór.

Eftir því sem þú situr lengur minnkar skugginn smátt og smátt og á endanum er Búdda einn eftir á púðanum.”

Úr bók Jakusho Kwong-roshi “No Beginning, No End”

SHUNRYU SUZUKI 1904-1971

kom til Kaliforníu undir lok sjötta áratugar síðustu aldar og stofnaði San Francisco Zen Center með nemendum sínum. Hann er höfundur bókarinnar “Zen hugur, hugur byrjandans” eða “Zen Mind, Beginners Mind”

Í huga byrjandans er hugmyndin“ég hef öðlast eitthvað!” ekki til.
Allar sjálfhverfar hugsanir takmarka hug okkar
.“Iðkun okkar getur aldrei orðið fullkomin.
Það má ekki verða til þess að við missum móðinn heldur verðum við að halda áfram að iðka.
Í því liggur leyndardómur iðkunarinnar.”

Suzuki-roshi