
Kanseon
Allir eru velkomnir á námskeið!
Námskeið verðu haldið mánudaginn 6. september (á morgun) kl. 19:00 . Námskeiðið kostar 3000,-kr og er iðkun allan mánuðinn innifalin. Mikhael Óskarsson er leiðbeinandi. Áhugasömum er bent á að senda honum póst og skrá sig. (mikhaelaaron@gmail.com)
Þátttakendur læra m.a.:
- Sitja zen-hugleiðslu. Zazen eða sitjandi Zen
- Kinhin (gönguhugleiðslu)
- Formið í setusalnum og rétta líkamsstöðu við Zen hugleiðslu á púða eða stól
- Að fylgjast með inn- og útöndun í þögn
Zen iðkun er sterk og heiðarleg iðkun sem byggir á öndun og vakandi huga (gerhygli). Zen iðkun hjálpar okkur að skilja betur hver við erum í raun og veru. Allir eru velkomnir að iðka með okkur. Við hvetjum alla áhugasama til þess að koma á námskeið en þau eru haldin fyrsta mánudag hvers mánaðar.

Zenki og Roshi
Zen í dagsins önn
Ástvaldur Zenki Traustason verður með fyrirlestur á laugardaginn kemur (4. september) kl.10:00. Fyrirlesturinn hefur fengið nafnið Zen í dagsins önn og tekur um 45 mínútur. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar fyrirlesturinn um Zen iðkun í hversdeginum og hvernig iðkunin getur hjálpað okkur í þeim hraða og ráðleysi sem einkennir okkar samfélag. Það er mikilvægt að finna einhvern stöðugleika, eitthvað til að byggja á. Zen iðkun byggist á öndun og vakandi huga og hjálpar okkur að skilja tilveruna betur, hver við erum í raun og veru.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og heitt á könnunni á eftir.
Þessa dagana er verið að laga veggina í setusalnum okkar. Það hefur gengið ágætlega en setur hafa legið niðri í síðustu viku og byrjun þessarar. Nú er allt klárt og setu hefjast aftur á morgun samkvæmt sumardagskrá sjá. forsíðuna á heimasíðunni. Hlakka til að sjá ykkur
Þriggja daga sesshin hefst að morgni fimmtudagsins 13 maí n.k. og lýkur sunnudaginn 16. mai kl.13:00.
Sesshin er hjarta Zen iðkunar og því gott tækifæri til að gefa sig í iðkunina.
“HIÐ DÁSAMLEGA DHARMA VERÐUR HVORKI HUGSAÐ, STAÐSETT EÐA SÉД
Kwong Roshi
Verð: 12000,00, stakur dagur 5000.00
Tilkynningar á zen@zen .is eða á Grensás Sanga húsnæði.
Lau.10. Afmæli Búdda. Farið verður eftir setur frá Grensás kl. 09:40. Kyrjað við stúpu kl.10:15 og kaffi strax á eftir að Fjallalind 16, Kópavogi. Allir koma með eitthvað með kaffinu.
Brot úr bókinni „Þú verður að segja eitthvað“ eftir Dainin Katagiri Roshi.
Líf handan útskýringa

Flest okkar sem hlustum á kenningu Búddha höfum sennilega einhverja ástæðu fyrir því hvers vegna við byrjuðum að hlusta. Þeir sem iðka zazen hafa sennileg ástæðu til að fara í iðkunarsalinn. Einhverjir munu segja að það sé til þess að lifa hamingjusömu lífi. Aðrir gætu sagt að þeir vilji losa líf sitt undan flækjum umheimsins. Sumir vilja einfaldlega stuðla að heilbrigði hugar og líkama. En hver sem ástæðan er, þá er hún ekki það sem skiptir höfuðmáli. Útskýringar eru aukaatriði. read more…
Helga Kimyo verður með fyrirlestur á laugardaginn kemur á Grensásvegii 8 (efstu hæð) kl. 10. Allir velkomnir. Fyrirlesturinn tekur um 40 mínútur, kaffi og spjall á eftir.
Föstudaginn 16.okt. kl.19:30 verður „sesshinpartý“ hjá Helgu Jóakims að Glaðheimum 10.
Eins og venjulega kemur fólk með eitthvað til að snarla og drekka.
Allir eru velkomnir og líka þeir sem ekki sáu sér ekki fært að taka þátt í sesshin.
Morguninn eftir, laugardaginn 17.okt., falla setur og önnur dagskrá niður.
Helga Kimyo verður með áhugaverðan fyrirlestur og spjall um Zen iðkun á laugardaginn kemur, 3. október. Gott tækifæri til þess að styrkja sína iðkun og kynnast betur Zen iðkun.
Að snúa útgeislun sinni innávið
Eftir Jakusho Kwong- roshi
Í morgun settist lítill fugl í gluggakistuna mína og söng undurfagra söngva sína. Ég veit ekki hvers vegna, en þannig er náttúran. Fuglinn var agnarsmár, en söng af ótrúlegri snilld. Aftur og aftur söng hann sönginn sinn af öllu hjarta en flaug að lokum í burtu. Hvernig er þetta gert? Með öðrum orðum hvernig getur maður sýnt hjarta sitt? Hvernig er hægt að vera hér og nú af öllu hjarta, hvar sem er, hvenær sem er og hver sem maður er? Hvernig er því skilað til annarra? Þetta eru stórar spurningar.
Það hefur gustað um upp á síðkastið hér á Sonoma fjalli. Sumir í klaustrinu og niðri í dalnum hafa kvartað yfir því að hér sé of hvasst. Á vorin feykir vindurinn hlutum til og frá. Frækornum er sáð. Þannig vinnur náttúran alveg eins og syngjandi smáfugl. Ef við stoppum vindinn í huganum er það einungis okkur sjálfum til hægðarauka. Kannski viljum við losna við óþægindi vegna frjóofnæmis, en það er ekki til góðs þegar á heildina er litið. Að horfa á heiminn frá því sjónarhorni er hvorki gott fyrir okkur sjálf né heildina. Í raun eykur það einungis þjáninguna í lífi okkar. read more…