Zen
Námskeið á morgun í Zen hugleiðslu
Kanseon
Allir eru velkomnir á námskeið!
Námskeið verðu haldið mánudaginn 6. september (á morgun) kl. 19:00 .  Námskeiðið kostar 3000,-kr og er iðkun allan mánuðinn innifalin. Mikhael Óskarsson er leiðbeinandi. Áhugasömum er bent á að senda honum póst og skrá sig. (mikhaelaaron@gmail.com)
Þátttakendur læra m.a.:
Sitja zen-hugleiðslu. Zazen eða sitjandi Zen
Kinhin (gönguhugleiðslu)
Formið í setusalnum og rétta líkamsstöðu við Zen hugleiðslu á púða eða stól
Að fylgjast með inn- og útöndun í þögn
Zen iðkun er sterk og heiðarleg iðkun sem byggir á öndun og vakandi  huga (gerhygli). Zen iðkun hjálpar okkur að skilja betur hver við erum í  raun og veru. Allir eru velkomnir að iðka með okkur. Við hvetjum alla  áhugasama til þess að koma á námskeið en þau eru haldin fyrsta mánudag  hvers mánaðar.
Zen fyrirlestur á laugardaginn kemur, 4. september
Zenki og Roshi
Zen í dagsins önn
Ástvaldur Zenki Traustason verður með fyrirlestur á laugardaginn  kemur (4. september) kl.10:00. Fyrirlesturinn hefur fengið nafnið Zen í dagsins önn og  tekur um 45 mínútur. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar  fyrirlesturinn um Zen iðkun í hversdeginum og hvernig iðkunin getur  hjálpað okkur í þeim hraða og ráðleysi sem einkennir okkar samfélag. Það  er mikilvægt að finna einhvern stöðugleika, eitthvað til að byggja á.  Zen iðkun byggist á öndun og vakandi huga og hjálpar okkur að skilja  tilveruna betur, hver við erum í raun og veru.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og heitt á könnunni á eftir.
Breytingar
Þessa dagana er verið að laga veggina í setusalnum okkar. Það hefur gengið ágætlega en setur hafa legið niðri í síðustu viku og byrjun þessarar. Nú er allt klárt og setu hefjast aftur á morgun samkvæmt sumardagskrá sjá. forsíðuna á heimasíðunni. Hlakka til að sjá ykkur
KANSEON SESSHIN
Þriggja daga sesshin hefst að morgni fimmtudagsins  13 maí n.k. og lýkur sunnudaginn 16. mai kl.13:00.
Sesshin  er  hjarta Zen iðkunar og  því gott  tækifæri til að gefa sig  í iðkunina.
“HIÐ DÁSAMLEGA DHARMA VERÐUR HVORKI  HUGSAÐ, STAÐSETT EÐA SÉÐ”
Kwong Roshi
Verð: 12000,00, stakur dagur 5000.00
Tilkynningar á  zen@zen .is  eða á Grensás Sanga húsnæði.
Afmæli Búdda
Lau.10. Afmæli Búdda. Farið verður eftir setur frá Grensás kl. 09:40. Kyrjað við stúpu kl.10:15 og kaffi strax á eftir að Fjallalind 16, Kópavogi. Allir koma með eitthvað með kaffinu.
Líf handan útskýringa
Brot úr bókinni „Þú verður að segja eitthvað“ eftir Dainin Katagiri  Roshi.
Líf handan útskýringa
Flest okkar sem hlustum á kenningu Búddha höfum sennilega einhverja ástæðu fyrir því hvers vegna við byrjuðum að hlusta. Þeir sem iðka zazen hafa sennileg ástæðu til að fara í iðkunarsalinn. Einhverjir munu segja að það sé til þess að lifa hamingjusömu lífi.  Aðrir gætu sagt að þeir vilji losa líf sitt undan flækjum umheimsins. Sumir vilja einfaldlega stuðla að heilbrigði hugar og líkama. En hver sem ástæðan er,  þá er hún ekki það sem skiptir höfuðmáli. Útskýringar eru aukaatriði.
Ef þú horfir á líf þitt með kyrrum hug,  geturðu séð að líf þitt ber framtíðina og fortíðina í skauti sér nákvæmlega núna. Líf þitt er ekki einungis sá þunni pappír sem við köllum núið. Það er raunar mjög þykkt, mjög djúpstætt.  Það er dýpt í lífi þíni sem er handan allra hugmynda þinna og vangaveltna. Að lifa andlegu lífi er að teygja sig í dýpt mannlegrar tilvistar, sem fer handan vitsmunalegs skilnings okkar og handan núverandi lífs okkar. Hvers vegna fórstu að lesa þessa bók? Hvers vegna ertu áhugasamur um Búddisma? Hvers vegna kýstu að stunda íhugun? Þú hefur ef til vill ástæður, en þegar allt kemur til alls þá veistu það ekki?
Ég kom til Bandaríkjanna 1963. Ég hef verið hér í mörg ár. En ef ég lít yfir líf mitt, sé ég að það er margt sem ég á eftir ógert. Sem dæmi, þá er sagt að Búddískar bókmenntir innihaldi átjánþúsund ritningar. Ég gerðist munkur átján ára, en samt eru ótal ritningar sem ég á enn eftir að lesa. Eins mikið og mig langar til að lesa þær, þá endist mér ekki lífið til þess að gera allt sem mig langar til að gera. Sama hversu lengi við lifum, hvernig getum við uppfyllt allar okkar langanir? Ef þú reynir að ljúka við allt það sem þú vilt afreka í lífinu, þá muntu verða mjög taugaveiklaður, pirraður, og órólegur.
Mannlegt líf heldur áfram að eilífu – líf eftir líf. En um leið og ég segi þetta, þá hugsar þú, „Katagiri trúir á endurholdgun“. En hið mannlega líf sem heldur áfram líf eftir líf er ekki þitt líf, eða mitt líf, eða líf einhvers annars tiltekins. Ef við bindumst eilífðarhyggju, og teljum að það sé einhver sérstakur eiginleiki sem haldi áfram líf eftir líf, munum við kafna í hinum myrka draumi eilífðarhyggjunnar. Þegar þessi hugmynd hættir að fullnægja okkur munum við leita að einhverju öðru sem gerir það. Við munum hamast við að finna einhverjar útskýringar sem fullnægja okkur, að lokum enda í  tómhyggju, en sama óánægjan gerir alltaf vart við sig. Alveg sama í hvað átt við förum, það er alltaf óróleiki og óánægja.
Í raun og veru á endurholdgun sér stað frá einu andartaki til annars. En við ættum aldrei að bindast henni. Að „bindast“ þýðir að sjá í henni eilífan eiginleika. Mjög mikilvægt er að átta sig á þessu. Við megum ekki búa til „hyggju“.
Ef þú einskorðar þig við útskýringar eilífðarhyggjunnar, mun líf þitt ekki lengur festa rætur í jörðinni. Hjarta þitt ætti bara að taka öllum skynverum eins og þær eru – sem ekkert sérstakt, sem algjörlega fljótandi. Hið andlega líf krefst þess að við iðkum til að bragða á þessum sannleik. Að gera það er að upplifa örlátan, göfuglyndan hug.
Ekkert til að reiða sig á
Ég held að flest fólk efist um iðkun zazen. Samanborið við aðra iðkun sem þú getur lært á hinum ýmsu námskeiðum og málstofum, virðist það að sitja bara of einfalt til að hreyfa við hjörtum okkar. Þar af leiðandi virðist það um leið of erfitt.
Af þessari ástæðu, hunsa flestir þessa einföldu iðkun að sitja bara og taka upp á öðru meira heillandi. Við stefnum að hinni dulrænu reynslu hins andlega lífs í þeim tilgangi að fullnægja persónulegum löngunum okkar. En hvað sem við upplifum þegar við leitumst við að uppfylla andlegar langanir okkar – hvort sem það er á námskeiðum og málstofum eða jafnvel í zazen – hittir það aldrei í mark. Það er alltaf ótraust. Til dæmis, jafnvel þó að þér líði vel í zazen eina stundina, gæti það allt verið horfið þá næstu. Að líða vel er mjög óstöðugt. Við gleymum alltaf breytingunni. Og það er þess vegna sem flest fólk er jafn eirðarlaust og raun ber vitni. Og það er þess vegna sem svo mörg okkar reynum að finna eitthvað til þess að hjálpa okkur að öðlast ró. Því miður er það svo að því meir sem við reynum að öðlast ró, því meir finnst okkur við vera óstöðug, og þá leitum við að enn öðrum iðkunum sem eiga að hjálpa okkur. Iðkanirnar sem við hlaupum til eru óteljandi. En það er alveg sama hversu miklum tíma við eyðum í þessari hringrás vonbrigða, við verðum á endanum að átta okkur á því að við lifum nákvæmlega hér, nákvæmlega nú. Það er, við verðum að temja okkur lifnaðarhátt sem er handan allra mannlegra vangaveltna. Við verðum að læra að lifa með óhagganlegan hug.
Er ekki eitthvað sem við getum reitt okkur á? Eitthvað sem við getum gert sjálfum okkur til hagsbóta sálfræðilega, eða andlega, eða heimspekilega? Getum við ekki fundið huggun í einhverri kenningu eða manneskju? Nei. Það er ekkert.
En það er eitt sem við getum gert. Við getum lært að lifa nákvæmlega hér, nákvæmlega nú, mitt í sjálfri hringrás lífs og dauða, sem Búddistar kalla samsara. Það eina sem við þurfum er að gera er að koma á stöðugleika í lífi okkar, að vera til staðar í hinni endalausu endurtekningu lífs og dauða, og bara lifa frá andartaki til andartaks. Þetta er það eina sem við getum gert. Þetta er lífið. Líf og dauði eru ekki tvennt.
Að opna hjarta þitt
Einlægni hjartans er mikilvægasta iðkunin fyrir hvern þann sem lifir andlegu lífi. En að höndla heiminn með samkennd og góðvild er ekki auðvelt. Við höfum tilhneigingu til að lifa með hliðsjón af „ég“. En ef þú hefur áhuga á andlegu lífi, verður þú að hugsa um meira en bara sjálfan þig. Öll trúarbrögð leggja áherslu það hversu mikilvæg hjartans einlægni er. En fæst okkar sýnum við hana í raun og veru í daglegu lífi okkar. Þannig að dag eftir dag, ár eftir ár, öld eftir öld, bendir viturt fólk okkur á þetta. Það veit hversu sjálfselsk við erum. En jafnvel ein manneskja sem sýnir kærleika og samkennd er stórfengleg uppspretta friðar í heiminum.
Hvað sem framtíðin ber í skauti sér, verðum við að halda áfram að leita heims sem grundvallast á iðkun hins einlæga hjarta. Fullkomin einlægni hjartans færir lífinu sveigjanleika, blíðu, og göfuglyndi. Þetta verður ekki útskýrt til fulls með hugtökum. Þú getur ekki fest fingur á þessu, en þú getur fundið fyrir þessu. Að lifa með þessum hætti er það sem þú ert raunverulega að leita að.
Venjulega lifum við lífi okkar eingöngu með hliðsjón af því sem við sjáum. Þegar við gerum það, leggjum við áherslu á sjálf okkur. Við setjum „Ég-ið“ í fyrsta sæti. Jafnvel þegar við tökum upp andlegt líferni, setjum við „Ég-ið“ í fyrsta sæti. Með öðrum orðum, þá drögum við allt niður á plan persónulegra skoðana okkar og tilfinninga. Við gleymum aldrei sjálfum okkur. Þetta er ástæðan, þegar öllu er á botnin hvolft, fyrir því að við erum oft pirruð og óróleg. Og því meir sem við setjum „Ég-ið“ í fyrsta sæti, því meiri pirring, óróleika, þjáningu, og ótta finnum við fyrir.
Það sem við höfum tilhneigingu til þess að hunsa er heimurinn sem sér okkur. Þetta er ekki heimurinn sem þú heldur að þú sjáir eða heyrir í. Engu að síður veitir þessi heimur þér stuðning. Þetta er í raun og veru heimurinn eins og hann er áður en þú varðst meðvitaður um hann – áður en þú gerðir þér einhverja hugmynd um hann. Ef þú leggur áherslu á sjálfan þig, muntu algjörlega gleyma þessum heimi sem sér, heldur utan um, og viðheldur þér. Til dæmis, úr því að ég leiði Zen hóp, enda þótt líf mitt sé mitt líf, er líf mitt í raun og veru ekki mitt líf. Líf mitt er í raun líf alls hópsins. Þannig að, sem eðlilegt er, jafnvel þó að mér líki það ekki, setjum við upp stundaskrá fyrir zazen, fyrirlestra, setudaga, og svo framvegis – og ég verð að fylgja því. Með öðrum orðum, hefur hópurinn sett niður fyrir mér ákveðin lífsstíl. Hvað varðar ég-ið mitt, þá líkar mér það ekki. Ég vildi heldur gera bara það sem mig langar til að gera, í stað þess að fylgja alltaf áætlun.
Öllum líður okkur svona annars lagið. Við segjum, „Ekki segja mér hvað ég á að gera!“ En við getum ekki annast líf okkur með góðu móti eingöngu út frá því sem er persónulega í uppáhaldi. Það er stór heimur sem sér þig. Þú getur ekki hunsað þennan heim.  Þannig að, jafnvel þó mér líki það ekki á köflum, þá veitir hópurinn mér þetta frábæra tækifæri til þess að iðka zazen. Þannig að þegar tækifærið gefst, er ég þákklátur fyrir það að geta setið zazen með öllum verum.
Öll eigum við okkur minningar, ávana, og mynstur í lífi okkar, og stundum, jafnvel þó okkur líði vel, kemur það í veg fyrir að við getum opnað hjörtu okkar. Vitsmunalega vitum við að við ættum að gera það, en tilfinningalega virðumst við ekki geta það. Samt, getum við það. Strangt til tekið, er einlægni hjartans handan allra vangaveltna. Hún er heildarmynd lífs okkar eins og þú lifir því frá degi til dags.
Ef þú vilt sýna samkennd verður þú að taka til greina heiminn sem þú sérð og um leið þann heim sem sér þig. Þú getur ekki lagt mat á líf þitt eingöngu með hliðsjón af því sem þú sérð – það er, frá þínu sjálfhverfa sjónarhorni. Þú verður að temja þér þolinmæði, kyrrð hugans, og vakandi athygli. Ef þú takmarkar ekki sjálfan þig alfarið við þitt eigið viðhorf til hlutanna, kemur þetta með eðlilegum hætti. Þegar þú einfaldlega sest niður í zazen, finnurðu fyrir einhverju. Jafnvel þó að þú vitir ekki hvað það er, birtist það einfaldlega, nákvæmlega hér, nákvæmlega nú.
Samkennd er eins og lindarvatn neðanjarðar. Líf þitt er eins og rör sem hægt er að leiða niður að neðanjarðarlindinni.  Þegar þú kemur niður að henni flæðir vatnið samstundis upp. Rektu því rörið þitt niður í jörðina. Tappaðu af vatni samkenndarinnar. Við getum ekki gert okkur í hugarlund hvað raunveruleg samkennd og einlægni hjartans er, en ef þú tappar af þeim, finnurðu fyrir því. Ef þú lærir að takast á við líf þitt með samkennd, göfuglyndi, og sveigjanleika, muntu verða blíður, örlátur, og vingjarnlegur. Þetta er það eina sem þarf til.
Við þurfum ekki á útskýringu að halda. Það er alveg sama hversu lengi við gröfumst fyrir um það hvers vegna við erum svona sjálfhverf, við munum aldrei fá almennilegt svar. Engu að síður, mitt í þessu „svarleysi“, heldur líf þitt áfram. Jafnvel þó við skiljum ekki getum við dregið djúpt andann. Við getum öll iðkað það að gleyma sjálfum okkur. Að gleyma sjálfum sér þýðir ekki að tortíma sjálfum sér. Að gleyma sjálfum þér er bara að sjá sjálfan þig frá öðru sjónarhorni: á þann hátt sem heimurinn sér þig. Þannig muntu ekki einungis sjá þitt litla sjálf heldur þitt sanna sjálf, stóra sjálf, sem felur í sér allar verur.
Þegar ég var fjórtán ára gamall dó móðir mín. Yfir heiminum virtist vofa algjört myrkur. Mér leið eins og ég ætti enga von. Dag eftir dag grét ég í rúminu mínu. Svo virtist sem að eftir því sem ég grét meira, því meir reyndi ég að teygja mig eftir henni, og því fjarlægari varð hún mér. Þannig að ég grét enn meira. Ég var stöðugt grátandi. En allt í einu hætti ég að gráta. Mér fannst eins og móðir mín hafi orðið hluti af hjarta mínu. Ég get ekki útskýrt þetta með orðum. En það voru ekki lengur nein skil á milli mín og móður minnar. Hún var í hjarta mér.
Þetta gildir um þig líka. Það ert þú og svo er það heimurinn. Ef það er svo mikið sem eitt lítið bil þar á milli, fyllum við það með hugsun. Svo lengi sem við búum til þetta bil, munum við aldrei skilja.  Því Sannleikurinn er sá að það er ekkert bil á milli þín og heimsins. Ósvikin hjartans einlægni felst í því að þú verðir eitt með viðfangi þínu. Þetta er ástæðan fyrir því að við iðkum zazen.
Zen fyrirlestur á laugardaginn kemur
Helga Kimyo verður með fyrirlestur á laugardaginn kemur á Grensásvegii 8 (efstu hæð) kl. 10. Allir velkomnir. Fyrirlesturinn tekur um 40 mínútur, kaffi og spjall á eftir.
Partý hjá Helgu á föstudaginn kl. 19:30
Föstudaginn 16.okt. kl.19:30 verður „sesshinpartý“ hjá Helgu Jóakims að Glaðheimum 10.
Eins og venjulega kemur fólk með eitthvað til að snarla og drekka.
Allir eru velkomnir og líka þeir sem ekki sáu sér ekki fært að taka þátt í sesshin.
Morguninn eftir, laugardaginn 17.okt., falla setur og önnur dagskrá niður.
Fyrirlestur á laugardaginn 3. október kl. 10:00-11:00!
Helga Kimyo verður með áhugaverðan fyrirlestur og spjall um Zen iðkun á laugardaginn kemur, 3. október. Gott tækifæri til þess að styrkja sína iðkun og kynnast betur Zen iðkun.
Að snúa útgeislun sinni innávið
Að snúa útgeislun sinni innávið
Eftir Jakusho Kwong- roshi
Í morgun settist lítill fugl í gluggakistuna mína og söng undurfagra söngva sína. Ég veit ekki hvers vegna, en þannig er náttúran. Fuglinn var agnarsmár, en söng af ótrúlegri snilld. Aftur og aftur söng hann sönginn sinn af öllu hjarta en flaug að lokum í burtu. Hvernig er þetta gert? Með öðrum orðum hvernig getur maður sýnt hjarta sitt? Hvernig er hægt að vera hér og nú af öllu hjarta, hvar sem er, hvenær sem er og hver sem maður er? Hvernig er því skilað til annarra? Þetta eru stórar spurningar.
Það hefur gustað um upp á síðkastið hér á Sonoma fjalli. Sumir í klaustrinu og niðri í dalnum hafa kvartað yfir því að hér sé of hvasst. Á vorin feykir vindurinn hlutum til og frá. Frækornum er sáð. Þannig vinnur náttúran alveg eins og syngjandi smáfugl. Ef við stoppum vindinn í huganum er það einungis okkur sjálfum til hægðarauka. Kannski viljum við losna við óþægindi vegna frjóofnæmis, en það er ekki til góðs þegar á heildina er litið. Að horfa á heiminn frá því sjónarhorni er hvorki gott fyrir okkur sjálf né heildina. Í raun eykur það einungis þjáninguna í lífi okkar.
Þetta minnir mig á ljóð sem Suzuki-roshi hélt mikið uppá. Það var skrifað á áttundu öld af Tozan Zenji sem telja má til stofnenda Soto zen skólans. Svo virðist sem Tozan Zenji hafi að nokkru leiti uppljómast í samræðum við kennara sinn Ungan Donjo daiosho, en efaðist þó. Eftir samræðurnar yfirgaf Tozan Zenji klaustur Ungan Donjo og hélt af stað út í sveit. Hann fór yfir læk og sá spegilmynd sína í vatninu. Við það hurfu allar efasemdir úr hjarta hans. Ímyndið ykkur það! Allar efasemdir ykkar horfnar á einu augabragði. Allt ofnæmi horfið. Hér er þýðing Suzuki roshi á ljóðinu sem lýsir uppljómun Tozan.
Reyndu ekki að sjá hinn hlutlæga heim
þú sem sýnilegur hlutur ert ólíkur því sem þú raunverulega ert
Ég fer mína leið og hitti á veginum sjálfan mig í öllu sem mætir mér
Ég er ekki eitthvað sem ég get virt fyir mér sem hlut
þegar þú skilur sjálf sem inniheldur allt
Gengur þú þinn sanna veg.
Þó að þetta ljóð hafi verið skrifað fyrir mörgum öldum á það enn við því það lýsir dharmískum sannleika. Á hverjum degi horfum við á hluti eins og þeir séu eitthvað fyrir utan okkur sjálf. Ástæða þess er auðvitað sú að öll reynsla okkar miðast við huglægt og hlutlægt. Þessi sýn er afleiðing þeirrar menntunar sem við höfum hlotið og fávisku okkar. Okkur hefur verið kennt að upplifa raunveruleikann á þennan hátt frá fæðingu. En á meðan þessu ástandi er viðhaldið, svo lengi sem þú hugsar og lifir í tvíhyggjunni ertu ekki tengdur raunveruleikanum og þjáist af þeim sökum. Fuglarnir, trén, fjöllin vindurinn, himininn. Allt er þetta hluti af sjálfum þér. Þetta er uppljómun sannleikans. Þú sem huglæg vera uppgötvar að það sem er hlutlægt er einnig þú sjálfur.
Í hugleiðslu snýrð þú útgeislun þinni aftur innávið. Þar sem ekki er neitt fyrir utan sjálfan þig, er allur heimurinn hið innra með þér sjálfum. Þetta er útgeislun. Hvernig getur þú meðtekið himininn ef þú ert ekki hluti af honum? Hvernig getur þú meðtekið ást ef þú ert ekki hluti af henni? Hvernig getur þú meðtekið fegurðina ef þú ert ekki fegurðin sjálf? Þannig að frá morgni til kvölds, hvort sem við heyrum, sjáum , hlæjum, grátum, í hamingju, í reiði verður stóra spurningin: “Hver er þessi persóna?” Þessi persóna er okkar upprunalegi hugur. Hið stóra sjálf sem birtist á óteljandi vegu.
Þessi líkami er hið líkamlega sjálf og þegar það deyr getum við ekki séð, heyrt, nærst, hlaupið eða notað hendurnar. En hinn upprunalegi hugur er enn til staðar. Það er þessi hugur sem hefur heyrt séð, hlegið og grátið allan tímann. Samt trúið þið mér ekki. Þrátt fyrir Dharma eigið þið erfitt með að trúa. Hvers vegna? Eitt svarið og líklega það mikilvægasta gæti verið að við nálgumst Dharma út frá tvíhyggju. En Dharma er ekki aðeins hlutur sem maður getur hugsað um. Það er eitthvað sem maður upplifir, kynnist. Á umliðnum öldum, jafnvel árþúsundum hefur Zen þróað leiðir til að hjálpa okkur til að þekkja Dharma. Þekkja það og upplifa náttúrulega útgeislun upprunalegs huga.
Að þessu leiti er orðið “noumenon”, eitthvað sem ekki er hægt að henda reiður á, mjög mikilvægt. Séð frá Buddhadharma þýðir orðið. Uppspretta án uppsprettu. Ástæðan fyrir því að það er kallað uppspretta án uppsprettu er sú að uppsprettan er okkar upprunalegi hugur, sem við erum hluti af. Það er ekki talað um “án uppsprettu” til að gefa því frumlegt nafn. Ef við segjum aðeins “uppspretta” virðist það vera eitthvað ákveðið og í framhaldi af því leitum við þessarar uppsprettu. Hvað er átt við þegar talað er um eitthvað “án uppsprettu”? Hvað er það? Við hvorki skiljum né getum skilgreint það á hlutlægan hátt eins og við erum vön, en í þeim heimi sem er “án uppsprettu” finnum við þann stað sem tilheyrir djúpu samadhi í zazen.
Við sjáum oft orðið “samadhi” og það skiptir miklu máli fyrir okkur að vita hvað það þýðir. Samadhi hefur verið líkt við djúpa einbeitingu. Meðal manna eru mörg stig einbeitingar. Einbeiting íþróttamannsins, skurðlæknisins, lesandans, elskhugans. En einbeiting í zen, eða samadhi, er að upplifa sannleikann. Samadhi er líkara því að halda á stækkunargleri og brenna gat á pappír. Til að það takist þurfa réttar aðstæður að vera fyrir hendi. Við þurfum að halda stækkunarglerinu kyrru í ákveðinn tíma. Í því er tímafaktorinn falinn. Við þurfum sólarljós og pappír til að brenna gatið á. Auk þess þarf stækkunarglerið í réttri fjarlægð frá pappírnum. Þessu má líkja við sterka einbeitingu þar sem huglægt og hlutlægt, eða sá sem horfir og það sem horft er á, verður eitt.
Þrátt fyrir að öllum þessum skilyrðum sé fullnægt er einungis hægt að tala um uppljómun. Samadhi er ekki sjálf uppljómunin heldur vegurinn að uppljómuninni. Einnig mætti segja að þegar þú situr á púðanum í samadhi ertu óspjölluð manneskja. Manneskja sem ekki er bundin af neinu. Ekkert kemur þér úr jafnvægi. Samt ertu lifandi og til staðar í núinu.
Ef eldur brytist út myndir þú að sjálfsögðu standa upp og slökkva hann. Þetta ástand er ekki tómt heldur ástand sem felst í því að vera í núinu, þín vera. Enn fara hugsanir í gegnum hugann vegna þess að þú ert lifandi, en þú ert ekki að hugsa. Hugsun er aðeins ein hugsun. Að hugsa eru tvær hugsanir. Að hugsa er tengt hugsun, en við hugsum ekki í samadhi. Engin fortíð, nútíð eða framtíð. Allt er fullkomið. Zammai, sem er japanska orðið fyrir samadhi þýðir “þrenning” fortíð , nútíð og framtíð. Fullkomnun. Handan hugans, sjálfsins eða tvíhyggjunnar. Það er erfitt fyrir sjálfið að virka á þessu svæði vegna þess að sjálfið kýs sjálfsstjórn og einangrun. En zammai er óendanlegt vegna þess að upprunalegur hugur okkar er óendanlegur.
Annað japanskt orð yfir samadhi er shoju. “Ju” þýðir að þiggja eins og í jukai. Táknið er hönd fyrir ofan, hönd fyrir þeðan og lína í miðjunni. Það er að gefa og þiggja og yfirleitt þýðir það að þiggja. “Sho” þýðir “rétt”. En þetta “rétta” er ekki andstæða þess sem er rangt. Það er eitthvað upprétt af sjálfu sér. Í því liggur ákveðin tilfinning “réttmætis”. Merking shoju er uppréttur, að meðtaka sinn eigin sannleik án hindrana. Þannig má einnig skýra samadhi. Við ættum að spyrja sjálf okkur. Hver meðtekur? Hvað er meðtekið?
Samadhi er orð í sanskrít sem þýðir “heild-saman”. Algjör heild. Auðvitað er þetta mjög gott. Hér er komið til skila höfgi og hátíðleika, réttri stöðu og staðfestu. Suzuki-roshi kallaði þetta óbreytanlega stellingu. Hann átti við að þessi stelling væri innra með þér sjálfum. Þetta er ekki hlutlægt mat og langt frá því sem þú telur þig vera í daglega lífinu.
Að lokum tel ég það mjög athyglisvert að í Webster orðabókinni er sagt að noumenon sé “hluturinn í sjálfum sér”. Það er hlutur og sjálf hans sem upplifun sem ekki er hægt að ná til. Það er ekki hægt að upplifa það . Mennirnir upplifa hluti en það sem stendur okkur næst er óupplifanlegt. Það þýðir að hlutlægt og huglægt eru eitt og hið sama. Á meðan þú lifir í tvíhyggjunni eru skil milli þín og raunveruleikans. Þessvegna segi ég að þú þurfir að gleyma þessu sjálfi, þ.e.a.s. því sem þú heldur að þú sért. Þá áttu möguleika á því að komast að því hvernig þessi persóna getur verið.
Ljóð Tozan Zenji vísar leiðina í átt til svars við þessari spurningu strax í upphafslínunni. Þegar hann skrifar:
“Reyndu ekki að sjá hinn hlutlæga heim þú sem sýnilegur hlutur ert ólíkur því sem þú raunverulega ert”
Er hann að segja okkur að við eigum ekki að leita útífrá þegar við iðkum. Útífrá gæti þýtt það sem er bókstaflega fyrir utan huga okkar og líkama, en getur líka þýtt allar þær hugsanir sem ganga yfir okkur í setunni. Þessar hugsanir eru líka “útífrá”. Þær kunna að vera skemmtilegar en eru engu að síður aðeins blekkingar, þær eru ekki hluti af okkur og einskis nýtar. Að fylgja þeim styrkir einungis tvíhyggju þannig að við ættum að forðast að festast í þeim í setunni.
Tozan segir að við ættum að forðast að það gera nokkuð í heiminum hlutlægt, sérstaklega sjálf okkur. Þegar þú reynir að horfa á sjálfan þig á þann hátt dregur það úr skilningi þínum og upplifun á því hver þú raunverulega ert.