Zen

Leshringur laugardaginn 19.maí kl.10:00-11:00: Hinn áttfaldi vegur e.Chögyam Trungpa, II.hluti
Chögyam Trungpa, Rinpoche (1939-1987)

Laugardaginn 19.maí nk. kl.10:00-11:00 mun Andri Fannar Ottósson leiða leshring um þýðingu sína á textanum “Hinn áttfaldi vegur”, úr bókinni Frelsisgoðsögnin (The Myth of Freedom) e.Chögyam Trungpa, tíbeska hugleiðslukennarann sem kynnti Vajrayana-búddismann fyrstur manna á Vesturlöndum.

Trungpa, Rinpoche (seinna orðið er heiðurstitill sem þýðir “gimsteinn”) var mikill vinur Shunryu Suzuki-roshi og síðar velgjörðarmaður Jakusho Kwong-roshi, kennara okkar, eftir andlát Suzuki-roshi. Eftir að Trungpa Rinpoche lést árið 1987 stóð Kwong-roshi fyrir byggingu minnisvarða í minningu Trungpa Rinpoche á Zensetrinu á Sónómafjalli.

Eins og venjan er hefst dagskráin á laugardaginn með formlegri iðkun í setusal kl.08:00. Kaffi og meðlæti um hálf tíu leytið. Allir eru velkomnir að taka þátt í dagskránni.

Sesshin dagur laugardaginn 12.maí kl.08:00-13:00
Rinzai, eftir Hakuin

Laugardaginn nk. frá kl.08:00-13:00 stendur Zen á Íslandi fyrir sesshin degi. Sesshin, sem þýðir að snerta hug og hjarta, er samfelld iðkun í einn eða fleiri daga í senn, og er einn af hornsteinum Zen iðkunar. Sesshin dagurinn á laugardaginn er frábært tækifæri til að kynnast þessari iðkun fyrir þá sem hafa hug á að taka þátt í 5 daga sesshin með kennara okkar Jakusho Kwong-roshi í lok júní.

Fyrir utan formlega iðkun í setusal verður boðið upp á fræðslu, þar sem Andri Fannar mun kynna þýðingu sína á texta eftir Chögyam Trungpa Rinpoche, og oryoki máltíð við borð. Þeir sem ekki hafa tekið þátt í oryoki áður eru eindregið hvattir til þess að taka þátt, því sú athöfn lærist best með endurtekningunni.

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á zen@zen.is

Dharma ræða Helgu Kimyo, fimmtudaginn 3.maí kl.20:00: Að annast jarðveginn
"Oni Zazen" eftir Hakuin Ekaku. "Púki í Zazen"

Fimmtudaginn 3.maí nk. kl.20:00-21:00 verður Helga Kimyo með Dharma ræðu. Yfirskriftin er “Að annast jarðveginn”. Allir velkomnir.

Hinn heilagi boðskapur vinnunnar e. John Daido Loori (1931-2009), í íslenskri þýðingu Mikhaels Óskarssonar
“Þeir sem álíta að hið veraldlega líf sé hindrun á veginum til Dharmasins vita aðeins að Dharma er ekki að finna í veraldlegum athöfnum; en vita ekki ennþá að í Dharmanu er engar veraldlegar athafnir að finna.” – Dogen Zenji

Mig langar til þess að fjalla um vinnuiðkun, hvernig dagleg störf og skyldur geta verið tækifæri til iðkunar. Þegar ákveðnum þroska er náð, í zazen, í starfi, og í lífinu, þá hefur allt sem þú tekur þér fyrir hendur sama skýrleika og heiðarleika. Þá birtist vinnan sem zazen í athöfn. Þegar við dveljum á Zen setri gefst okkur tækifæri til þess að rannsaka ávana okkar, sjá hvernig við förum að. Sjálfsleysið sem við iðkum og predikum á Zen setrinu er hins vegar í andstöðu við sjálfseftirlætið í samfélaginu. Í setusalnum hneigjum við okkur fyrir hvort öðru; í neðanjarðarlestinni troðum við okkur fyrir framan aðra. Á setrinu þjónum við; í hinum veraldlega heimi þiggjum við. Setrið gæti virst okkur eins og griðastaður þar sem hægt er að  komast hjá erfiðleikunum og flækjunum sem við upplifum í daglegu lífi. En Zen setur er ekki griðastaður – það er brennsluofn, þar sem við getum skapað líf sem einkennist af styrk, göfuglyndi og sjálfsöryggi til að mæta þeim aðstæðum sem við stöndum frammi fyrir á degi hverjum. Iðkun okkar snýst ekki um að sitja í einangrun uppi á fjallstindi einhvers staðar, dvelja í kyrrðinni og snúa baki við amstri hins veraldlega heims, heldur að raungera Búdda Dharma í öllu sem við gerum, svo að hið veraldlega og hið heilaga eru eitt og hið sama. Ef við ætlum að gera vinnuiðkunina að virkum hluta iðkunar okkar þá er nauðsynlegt að átta sig á þessu.

Undirstaða vinnuiðkunar er opin athygli, sú meðvitund þar sem líkaminn starfar áreynslulaust, skilningarvitin eru vakandi, og hugurinn er skýr og beitir sér að því verki sem liggur fyrir. Þessi eftirtektarsemi er bein upplifun. Athyglin stendur ekki í stað; hún hreyfist í takt við atburði lífsins. Stundum þurfum við að einbeita okkur algjörlega að því sem við erum að gera: þetta kallast “að halda fast í”. Á öðrum stundum er nauðsynlegt að “sleppa,” að gefa frá sér og halda áfram. Við eigum til að festast, og þegar næsta mál liggur fyrir erum við ennþá með hitt á bakinu. Opin athygli leyfir okkur að flæða, einbeita okkur og vera í núinu.

Sumir misskilja þetta og halda að Zen búddistar ákveði aldrei neitt fyrirfram. En það að gera áætlanir er ekki það sama og að vera með markmið í huga – áætlanir eru hér og nú; ákvarðanir um framtíðina eru hér og nú. Án skipulags verður vinnan losaraleg og ómarkviss og við festumst í hugmyndum okkar um útkomuna og gleymum því að ferlið og markmiðið eru sami raunveruleiki. Rétt eins og “gott” og “slæmt” eru sami raunveruleiki, eins og tvær hliðar á sama peningi. Hvert skref sem færir okkur nær markmiði okkar er markmiðið sjálft. Eitt er á undan en hitt á eftir; hvort tveggja er til á sama tíma. Þegar við skiljum þetta til fulls hættum við að vera svona upptekin af markmiðinu og þá getum veitt andartakinu hér og nú fulla athygli. Með því verður hvert skref lifandi, og við getum upplifað það til fulls.

Þegar ég hneigi mig fyrir Búdda, þá geri ég mér ljóst að það er Búdda sem hneigir sig fyrir Búdda. Það sama má segja um vinnuna. Þegar allt er á sínum stað er næsta skref að framkvæma. Listin er sú að “gera það sem þú ert að gera meðan þú gerir það.” Með öðrum orðum, að vera fullkomlega hér og nú. Að upplifa vinnuna til fulls, rétt eins og við upplifum andardráttinn í zazen. Að vera andardrátturinn…vera zazen. Vera vinnan; það er enginn munur á þessu tvennu.

Við þurfum líka að horfast í augu við erfiðleika í vinnuiðkuninni, koan-spurningarnar í daglega lífinu – “Genjokoan”. Við getum tekist á við þær rétt eins og í zazen. Hvernig tekst maður á við erfiðleika í setusalnum? Þú situr með andardrætti þínum og heyrir allt í einu eitthvað sem minnir þig á eitthvað. Og það minnir þig á eitthvað annað, og svo annað, og svo framvegis, og áður en þú veist af ertu á bak og burt. Andardrátturinn er löngu gleymdur og þú ert í hringiðu þeirra aðstæðna sem þú hefur skapað þér. Þegar þú áttar þig á því að þú ert ekki lengur með andardrættinum, heldur með hugsuninni, þá horfirðu á hugsunina…meðtekur hana…gefur hana frá þér…og snýrð aftur til andardráttarins. Þú dæmir ekki hugsunina, skilgreinir hana ekki, elskar hana ekki, hatar hana ekki. Ef hugsunin kemur aftur þá ferðu aftur í gegnum sama ferli: horfir á hana, meðtekur hana, sleppir henni, og setur athygli þína aftur á andardráttinn. Í hvert skipti sem þú setur athyglina aftur á þann stað sem þú óskar að hún sé, styrkir þú einbeitingarkraft þinn. Og ef hugsunin heldur áfram að koma, þá leyfirðu henni að gera það…Ert eitt með henni…Ef kvíði kemur endurtekið upp, vertu eitt með kvíðanum. Leyfðu honum að vera til, gefðu kvíðanum stóran haga. Vertu eitt með því sem kemur; ekki aðgreina þig frá því. Þegar þú aðgreinir þig, þá stækkar það sem þú ert að flýja, og verður öflugra.

Það er sama ferlið í vinnuiðkuninni. Í vinnuiðkun erum við eitt með verkinu, rétt eins og við styðjumst við andardráttinn í zazen. Þegar þú ert annars hugar…gerðu þér grein fyrir því, gefðu hugsunina frá þér, og færðu athyglina aftur að verkinu. Stundum festist maður hins vegar; þetta getur gerst í zazen líka. Þess vegna fer maður og talar við kennarann. Þá gefst tækifæri til þess að skoða vandann á annan hátt, vinna með hann á öðruvísi hátt. Vandamálið verður að koan. Og koan sem koma úr iðkun okkar, eða vinnu, eru oft þeir öflugustu sem á vegi okkar verða í lífinu. Annað heiti yfir vandamál er tækifæri, tækifæri til þess að virkilega helga sig iðkuninni. Það er auðvelt að iðka þegar allt gengur vel, en ströng iðkun er að sitja þegar það er erfitt. Það er líka oftast þá sem hlutirnir fara að gerast, vegna þess að það sem gerir okkur erfiðast fyrir er líka það sem við lærum mest af.

Önnur hlið á vinnuiðkun sem vert er að skoða er þögnin. Að hafa þögn þýðir ekki endilega að tala ekki þegar þess gerist þörf, að svara í símann, að segja einhverjum til: málið snýst um að sleppa öllu óþarfa masi, þegar við tölum til þess eins að tala.

Eitt sinn spurði Joshu Nansen, “Hvað er Taó?” Nansen svaraði, “Venjulegur hugur er Taó.” “Hvort eigum við þá að beina okkur að honum eða ekki?” spurði Joshu. “Ef þú reynir að beina þér að honum, þá snýrðu baki við honum,” svaraði Nansen. Joshu bætti við, “Ef við reynum ekki, hvernig getum við vitað að það er Taó?” Nansen svaraði, “Taó finnst ekki í því að vita eða því að vita ekki. Að vita er blekking, að vita ekki er tóm vitund. Þegar þú raunverulega hefur Taó án efa, er það eins og hið mikla tóm, víðáttumikið, handan allra takmarkana. Hvernig geturðu því talað um rétt og rangt í Taó?” Venjulegur hugur: hugurinn sem sefur þegar hann er þreyttur og borðar þegar hann er svangur. Þetta er Búddahugurinn, hugur vinnuiðkunar.

Leikmaðurinn P´ang sagði, “Er þetta ekki dásamlegt? Er þetta ekki undursamlegt? Ég hegg við í eldinn og dreg vatn úr brunninum.” Sjáum að lífið sjálft og allt sem það inniheldur er fullkomin birting Búddadharma. Þetta líf er líf Búdda. Veraldlegar athafnir þessa lífs eru sjálft Dharmað. En áttum okkur á því sem Dogen Zenji segir,

“Að halda sjálfinu fram og skilja hið veraldlega er blekking. Þegar hið veraldlega kemur fram og upplýsir sjálfið er uppljómun.”

Að “halda sjálfinu fram” þýðir að aðgreina sjálfan sig. Þegar “hið veraldlega kemur fram” ert þú eitt með viðfangi athygli þinnar. Hinn veraldlegi heimur er lífið þitt, og frelsunin sem í honum er að finna raungerist stöðugt. Ef þú trúir mér ennþá ekki, gáðu þá að andardrættinum stutta stund…dragðu hann að þér frá umhverfinu í kringum þig…finndu fyrir andanum…fylltu lungun…njóttu hans. Og síðan…gefðu hann frá þér, aftur til umhverfisins…Er það ekki undursamlegt, þetta líf?

Opið Hús “Zazen Dagur” á Afmæli Búdda, laugardaginn 14.apríl, kl.11:00 – 17:00
Samkvæmt venju er afmæli Búdda haldið í heiðri í byrjun apríl með ýmis konar hátíðarhöldum. Við í Zen á Íslandi – Nátthaga ætlum að halda upp á þessa hátíð í þetta skiptið með því að bjóða öllum, sem hafa áhuga, að taka þátt í opinni zazen dagskrá laugardaginn 14.apríl næstkomandi.

Þeir sem vilja taka þátt geta komið á Grensásveginn hvenær sem er frá kl.11:00 – 17:00 og setið í hugleiðslu og/eða iðkað gangandi hugleiðslu, eins lengi og hverjum og einum þykir best.

Boðið verður upp á veitingar kl.13:30 og er  þátttakendum  velkomið að leggja eitthvað á borðið, eða koma með blóm til að setja á altarið, eins og gjarnan er gert á afmæli Búdda.

Allir eru velkomnir, og leiðbeining í sitjandi og gangandi  zen hugleiðslu er í boði fyrir þá sem þess óska.

Dagur Vakandi Athygli laugardaginn 24.mars kl. 08:00 – 13:00
Laugardaginn 24.mars nk. stendur Zen á Íslandi – Nátthagi fyrir svonefndum Degi Vakandi Athygli. Dagskráin er sem hér segir:

08:00 Zazen 40 mín

08:40 Kinhin gönguhugleiðsla 10 mín

08:50 Zazen 40 mín

09:35 Chi Kung (Qi Gong) 35 mín

10:00 Oryoki morgunverður

Leshringur að loknum morgunverði.

11:50 Zazen 30 mín

12:20 Kinhin 10 mín

12:30 Zazen 30 mín

Morgunverðurinn verður í oryoki stíl við borð, og þeir sem ekki hafa prófað það áður fá leiðsögn við borðið.

Að leshringnum undanskildum fer iðkunin fram í þögn og iðkendur leyfa hljóðri vakandi vitund að ríkja. Þetta er tækifæri fyrir þá sem ekki hafa tekið þátt í sesshin (samfelld iðkun í einn eða fleiri daga) og huga að þátttöku í sesshin í júni þegar kennari okkar Kwong-roshi verður hér.

ATH. Hafið oryoki skálar með, og þeir sem ekki eiga skálar geta fengið lánaðar hjá Tenzo (Atli Már).

Vinsamlegast skráið þátttöku á korktöflunni á Grensás eða með því að senda póst á zen@zen.is

Að fara á salernið er Zen: Leshringur laugardaginn 8.mars
„Sem betur fer eða því miður þurfum við að fara á salernið, illþefjandi salernið, jafnvel þó ykkur líki það ekki. Mér þykir það leitt, en ég held að við þurfum að fara á salernið svo lengi sem við lifum.“ - Shunryu Suzuki-roshi

Laugardaginn 5.mars nk. kl. 10:00-11:00 mun Andri Fannar Ottósson leiða leshring um kafla úr bókinni not always so eftir Shunryu Suzuki-roshi. Andri hefur þýtt kafla úr bókinni yfir á íslensku og mun lesa þýðingu sína fyrir okkur, og síðan verður opnað fyrir umræður um textann. Kaflinn sem um ræðir í þetta skiptið ber heitið ” The Zen of Going to the Rest Room ” í frumtextanum.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Að þekkja óendanleikann: Fyrirlestur um einlæga iðkun á Veginum
Eihei Dogen (1200-1253), stofnandi Soto Zen skólans í Japan

Fimmtudaginn 1.mars nk. kl.20:00 mun Helga Kimyo Jóakimsdóttir halda fyrirlestur um Zen sem ber heitið “Að þekkja óendanleikann”. Efni fyrirlestrarins er ritgerð Dogen, stofnanda Soto Zen skólans í Japan, sem ber heitið “Bendowa” eða Um einlæga iðkun á Veginum, og útskýringar Zen meistarans Kosho Uchiyama á þessum lykiltexta Dogens.

Helga Kimyo gegnir stöðu forstöðumanns trúfélagsins Zen á Íslandi – Nátthaga og hefur hlotið nafnbótina Hoshi (Dharma Holder) frá Jakusho Kwong-roshi, kennara Zen á Íslandi. Hún hefur verið nemandi Kwong-roshi frá árinu 1986.

Húsið opnar kl.19:15 en dagskrá kvöldsins hefst með 30 mínútna zazen kl.19:30. Allir eru hvattir til þess að taka þátt í hugleiðslunni, en það er einnig hægt að koma rétt fyrir kl.20:00 til þess að hlýða á fyrirlesturinn.

Hýðisgrjón eru alveg mátuleg e. Shunryu Suzuki-roshi, í íslenskri þýðingu Gunnlaugs Más Péturssonar
Hýðisgrjón eru alveg mátuleg

„Hvernig finnst ykkur zazen? Líklega er betra að spyrja; hvernig finnst ykkur hýðisgrjón? Zazen er of stórt umræðuefni. Hýðisgrjón eru alveg mátuleg. Í raun er ekki mikill munur á þessu tvennu.“Hvernig finnst ykkur zazen? Líklega er betra að spyrja: Hvernig finnst ykkur hýðisgrjón? Zazen er of stórt umræðuefni. Hýðisgrjón eru alveg mátuleg. Í raun er ekki mikill munur á þessu tvennu. Þegar þið borðið hýðisgrjón þurfið þið að tyggja þau vel, annars er erfitt að kyngja þeim. Ef þið tyggið þau rækilega verður munnur ykkar hluti af eldhúsinu og raunar verða hýðisgrjón betri eftir því sem þau eru tuggin lengur. Þegar við borðum hvít hrísgrjón tyggjum við ekki eins mikið; þau liggja svo vel undir tönn að þau renna niður kokið áður en maður veit af.

Þegar við meltum mat fullkomlega, hvað verður þá um hann? Hann umturnast, og í breyttri efnafræðilegri samsetningu flæðir hann um allan líkamann. Í þessu ferli deyr maturinn í líkama okkar. Að borða og melta mat er okkur eðlislægt; við erum alltaf að breytast. Þetta lífræna ferli köllum við „Tóm.“ Við köllum það tóm vegna þess að það hefur ekkert sérstakt form. Það hefur einhverskonar form, en það form er ekki varanlegt. Á meðan það breytist viðheldur það lífskrafti okkar.

Við vitum að við erum tóm, og við vitum líka að jörðin er tóm. Form eru ekki varanleg. Þið veltið kannski fyrir ykkur: „Hvað er þessi heimur?“ En alheimurinn á sér engin takmörk. Tómið er ekki eitthvað sem hægt er að öðlast skilning á með því að fara í geimferð. Tómið getið þið skilið með því að einbeita ykkur fullkomlega að því að tyggja grjón. Þetta er raunverulegt tóm.

Aðalatriðið er að þið byggið ykkur upp, í sönnum skilningi; án þess að byggja á blekkingum. Samt sem áður getum við hvorki lifað né iðkað án blekkinga. En þótt blekkingin sé nauðsynleg getið þið ekki reist ykkur upp með hana að grunni. Blekkingin er eins og stigi. Án hans getið þið ekki klifrað upp, en þið haldið ekki um kyrrt í stiganum. Ef þið treystið þessu getið þið haldið áfram að læra veg okkar. Þess vegna segi ég: „Ekki hlaupa burt, vertu hjá mér.“ Þá á ég ekki við að þið eigið að hengja ykkur á mig. Ég á við að þið eigið að reiða ykkur á ykkur sjálf, ekki á blekkingar. Stundum gæti ég verið blekkingin. Þið gætuð ofmetið mig: „Hann er góður kennari!“ Þetta er ákveðin blekking. Ég er vinur ykkar. Ég iðka bara með ykkur sem vinur sem á marga stiga.

Þið skuluð ekki að verða fyrir vonbrigðum með lélegan kennara eða slakan nemanda. Þegar slakur nemandi og lélegur kennari leita sannleikans af einurð þá setja þeir eitthvað raunverulegt af stað. Svona er zazen iðkun okkar. Við verðum að halda áfram að iðka zazen og halda áfram að tyggja hýðisgrjón. Á endanum mun okkur takast eitthvað.

Kærar þakkir.

Leshringur: Hýðisgrjón eru alveg mátuleg, eftir Shunryu Suzuki-roshi, í íslenskri þýðingu Gunnlaugs Más Péturssonar
„Hvernig líkar ykkur við zazen? Ég held að betra sé að spyrja; hvernig líkar ykkur við hýðisgrjón? Zazen er of stórt umræðuefni. Hýðisgrjón eru einmitt mátuleg. Í raun er ekki mikill munur á þessu tvennu.“

Kæru félagar,

Laugardaginn 25.febrúar nk. kl.10:00-11:00 mun Gunnlaugur Már Pétursson leiða leshring um þýðingu sína á kaflanum “Hýðisgrjón eru alveg mátuleg” úr not always so eftir Shunryu Suzuki-roshi.

Allir eru velkomnir, bæði virkir iðkendur og gestir.